Sérhverri þungun fylgja vonir og draumar. Við sjáum fyrir okkur nýtt líf og horfum fram á veginn. Við undirbúum okkur fyrir foreldrahlutverkið og leyfum okkur að hlakka til. Langoftast vakna þessar vonir og þessir draumar á þeirri stundu sem þungunin er orðin að veruleika. Þegar barn deyr í móðurkviði deyja um leið allir draumarnir, vonirnar og væntingarnar og eftir sitja foreldrar með sorg og söknuð.
Fagleg aðstoð, fjölskyldan, vinir og – kannski einna mikilvægast – einstaklingar í svipaðri stöðu eru flestum besta hjálpin.
Ákveðin þjónusta er boði fyrir foreldra og einstaklinga sem missa barn á meðgöngu.
Sjá eftirfarandi:
12 vikur eða styttra – Sorgarmiðstöð – fræðsla/opið hús
12-21 vikur – Sorgarmiðstöð stuðningshópastarf
22 vikur eða lengra – Landspítalinn stuðningshópastarf
– Missir á meðgöngu: 12 vikur eða styttra
Sorgarmiðstöð býður upp á fræðsluerindi og opið hús fyrir foreldra/einstaklinga. Skráning hér
Fræðsluerindi er einnig hægt að nálgast á heimasíðu okkar hér
– Missir á meðgöngu: 12 til 21 vikur
Sorgarmiðstöð býður upp á stuðningshópastarf fyrir foreldra og einstaklinga. Stuðningshópastarfið er í sex skipti og ávallt á sama tíma á sama degi. Hægt er að skrá sig í stuðningshóp hvenær sem er og er farið af stað með hóp þegar hann er orðinn full skipaður. Það kostar ekkert að koma í stuðningshópastarf en nauðsynlegt er að skrá sig til að tryggja þátttöku. Ef báðir foreldrar ætla að mæta verða þeir báðir að skrá sig.
Skráning hér neðar, rauður flipi
– Missir á meðgöngu: 22 vikur eða lengra
Landspítalinn býður foreldrum/einstaklingum upp á stuðningshópastarf.
Nánari upplýsingar og skráning á bjarneyh@landspitali.is